Tónlist

Seldi upp á út­gáfu­tón­leika án út­gáfu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var mikið fjör á útgáfutónleikum ISSA.
Það var mikið fjör á útgáfutónleikum ISSA. Aron Ingi Gestsson

Síðastliðinn laugardag hélt tónlistarmaðurinn og rapparinn ISSI útgáfutónleika í Gamla Bíó fyrir væntanlega plötu sína 21. Platan er enn óútgefin en uppselt var á tónleikana.

Í fréttatilkynningu segir:

„ISSI kom kraftmikill inn í senuna árið 2021 þegar hann gaf út síngúlinn Keyra og fylgdi honum eftir með smáskífunni ISSI deposit. ISSI hefur verið með mikil læti í rappsenunni síðastliðin tvö árin en hefur ekki ennþá gefið út plötu.

Upphitun var í höndum Big Joe og Tónhyl en einnig stigu Birnir, Daniil, Gísli Pálmi, Joey Christ, Krabbamane, Yung Nigo og Ízleifur með honum á svið og rifu þakið af húsinu.

Mikil eftirspurn er búin að vera á óútgefnu plötu ISSA 21 en borgaði Gummi Kíró 1.000.000 krónur til þess að fá eintak af plötunni og á undan öllum ásamt tösku og er mikið umtal búið að vera í kringum 21 síðustu mánuði.“

Það er margt á döfinni hjá ISSA en hann segist mjög þakklátur fyrir viðtökurnar.

„Mig langar að þakka öllum sem komu að því að láta þennan viðburð gerast, alla sem mættu upp á svið með mér og áhorfendum fyrir að koma og upplifa þetta með mér.

Nú tekur við gigg tímabil í sumar, það er nóg um að vera og ég mun spila um allt land. Ég er strax byrjaður að plana með teyminu mínu fleiri tónleika og upplifanir. Svo er það bara að negla sér aftur í stúdíóið.“

Issi klæddist fatnaði frá merkinu Paranoid In Space en hönnuðurinn heitir Óskar Capaul og handsaumaði fjóra galla á tíu dögum fyrir tónleikana. 

Hér má sjá nokkrar myndir frá tónleikunum:

Big Joe. Aron Ingi Gestsson
Issi í trylltu fitti frá oskarcapaul með 21 á bakinu.Aron Ingi Gestsson
Issi fór úr jakkanum. Aron Ingi Gestsson
Strákarnir í Tónhyl fluttu nokkur lög. Aron Ingi Gestsson
Daniil kom fram. Aron Ingi Gestsson
Joey Christ líka en kvöldið var mikil rappveisla. Aron Ingi Gestsson
Issi naut sín vel á sviðinu.Aron Ingi Gestsson
Listamaðurinn Gunnar Dagur gerði grafíkina sem kom einstaklega vel út. Aron Ingi Gestsson
Rapparinn Birnir var sömuleiðis merktur 21. Aron Ingi Gestsson
Gunnar Dagur gerði tryllta grafík fyrir Birni. Aron Ingi Gestsson
Issi og félagar í góðum gír. Aron Ingi Gestsson
Gísli Pálmi lét sig ekki vanta. Aron Ingi Gestsson
Yung Nico var drippin! Aron Ingi Gestsson
Issi var í skýjunum með kvöldið. Aron Ingi Gestsson
Félagarnir Issi og Yung Nico. Aron Ingi Gestsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×